top of page

Create Your First Project

Start adding your projects to your portfolio. Click on "Manage Projects" to get started

S8

verkþáttur

endurbætur, innréttingar, parket, burðarvirki

dagsetning

juní 2026

staðsetning

selfoss

skemmtilegt og fjölbreytt verkefni í sumarhúsi þar sem snikk sá um töluverðar endurbætur, bæði að innan og utan.

verkið hófst á niðurrifi eldri innréttinga og gólfefna. í kjölfarið var lagt nýtt undirlag, parket og gólflista ásamt uppsetningu á virkilega fallegum innréttingum frá formus. á innréttingum í eldhúsi og baðherbergi urðu fyrir valinu svar-brúnar spónlagðar framhliðar og í forstofunni var innrétting sem nýtir rýmið vel og er með sprautulökkuðum framhliðum i hlýlega gráum lit.

en verkefnið tók óvænta stefnu þegar í ljós kom að bústaðurinn hallaði töluvert. við nánari skoðun reyndist einn dregarinn undir húsinu illa farinn af fúa og steypt undirstaða sprungin. þá var ekki setið auðum höndum! pallurinn var opnaður, bústaðurinn tjakkaður upp og skemmdi dregarinn fjarlægður og nýjum var komið fyrir.

úr varð því mun umfangsmeira verkefni en upphaflega stóð til, en útkoman er glæsileg og sumarhúsið komið í betra horf, jafnt að innan sem undir niðri.

bottom of page